Wenger segir síðasta tímabil það erfiðasta á ferlinum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. júlí 2011 14:45 Wenger hefur stýrt Arsenal til þriggja Englandsmeistatitla. Nordic Photos/AFP
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal svaraði spurningum blaðamanna í Malasíu í gær en Arsenal er á æfingaferðalagi í Asíu. Wenger segir lið sitt nógu gott til þess að ná góðum árangri á næsta tímabili. Þá hafi síðasta tímabil hans með Arsenal verið hans erfiðasta á ferlinum. Aðspurður um gengi liðsins á síðasta tímabili sagði Wenger: „Afrek okkar á síðasta tímabili þrátt fyrir meiðsli og ungan leikmannahóp er leikmannahópnum til hróss. Við erum í góðri stöðu að sína hvað býr í liðinu. Ef þú ert sigurvegari segir þú: Við vorum mjög, mjög nálægt því á síðasta tímabili. Klárum þetta á þessu tímabili," sagði Wenger. Wenger segir síðasta tímabil hafa verið afar erfitt. „Síðari hluti síðasta tímabil var það erfiðasta á ferli mínum. Það var svo erfitt andlega vegna þess að við vorum langt niðri. Það sást langar leiðir að síðustu þrjár til fjórar vikurnar voru mjög erfiðar," sagði Wenger. „Ég tel okkur nógu góða (til að ná árangri)," sagði Wenger þrátt fyrir yfirlýsingar um að hann ætli að kaupa fleiri leikmenn. Fílbeinstrendingurinn Gervinho gekk nýlega til liðs við Arsenal og Wenger segir hann minna um margt á Thierry Henry. „Hann hefur áhugaverða hæfileika. Hreyfir sig vel án bolta, er öskufljótur og getur spilað frammi en einnig hægra og vinstra megin. Hann skorar mörk, leggur upp svo hann er frábær viðbót fyrir sóknarleik liðsins. Stuðningsmenn Arsenal eiga eftir að njóta þess að fylgjast með honum," sagði Wenger.
Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Sjá meira