Engin krísa hjá FIFA Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. maí 2011 09:30 Sepp Blatter á blaðamannafundinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Sepp Blatter hélt í gær skrautlegan blaðamannafund í höfuðstöðum Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, í Sviss. Mikið hefur gengið á hjá FIFA síðustu daga og vikurnar vegna ásakana um spillingu sem hefur gengið manna á milli. Á morgun verður haldin forsetakosning hjá FIFA en sá eini sem er í framboði er núverandi forseti, Sepp Blatter. Mohamed Bin Hammam var í mótframboði en dró það til baka skömmu áður en siðanefnd FIFA dæmdi hann í tímabundið bann vegna mútustarfssemi. Á sama tíma var Jack Warner, varaforseti FIFA og forseti Knattspyrnusambands Mið- og Norður-Ameríku, einnig vikinn tímabundið frá starfi vegna sömu ásakana. Warner svaraði með því að halda því fram að Jerome Valcke, framkvæmdarstjóri FIFA, hafi sent sér tölvupóst þar sem hann heldur því fram að Katar, með Bin Hammam í fararbroddi, hafi keypt sér þau atkvæði sem þurftu til að fá að halda úrslitakeppni HM árið 2022. „Fótbolti er ekki í krísu - bara nokkrum erfiðleikum,“ sagði Blatter á áðurnefndum blaðamannafundi. Mál FIFA hafa vakið mikla athygli og hefur til að mynda breska ríkisstjórnin gefið í skyn að fresta þurfi forsetakosningunni á meðan þessi mál gangi yfir. „Ef ríkisstjórnir ætla að skipta sér af málefnum okkar þá er eitthvað að,“ sagði Blatter en FIFA er með afar strangar reglur um afskipti yfirvalda. „Ég held að FIFA sé nægilega sterkt til að takast á við okkar mál innnanhúss.“ Blatter hefur lengi verið sakaður um spillingu og nú síðast fyrir nokkrum dögum. Hann var hreinsaður af þeim ásökunum á sama tíma og Bin Hammam og Warner var bannað að hafa frekari afskipti af knattspyrnu. Knattspyrnusamband Íslands á vitaskuld atkvæðisrétt í forsetakjörinu á morgun og hefur áður sagst ætla að styðja Blatter.
Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Sjáðu Stjörnuna klára Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Sjá meira