West Ham lánar Kieron Dyer til Ipswich Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2011 17:00 Kieron Dyer. Mynd/Nordic Photos/Getty
Kieron Dyer, mun spila næsta mánuðinn með sínu gamla félagi Ipswich Town, eftir að West Ham samþykkti að lána hann til enska b-deildarliðsins. Dyer hefur aðeins spilað 13 leiki fyrir West Ham á tímabilinu og hefur verið langt frá sínu besta. Newcastle keypti Kieron Dyer á sex milljónir punda frá Ipswich árið 1999 en hann var mjög óheppinn með meiðsli á St James' Park og var að lokum seldur til West Ham fyrir sömu upphæð árið 2007. Dyer var ekki mikið heppnari með meiðsli á Upton Park og tvífótbrotnaði meðal annars í aðeins sínum þriðja leik með liðinu. Hann var frá í sautján mánuði eftir það en snéri aftur í janúar 2009. Eftir það hefur gengið illa hjá honum að vinna sér sæti í West Ham liðinu. Dyer spilaði síðast fyrir Avram Grant 26. janúar síðastliðinn en gott gengi liðsins upp á síðkastið og frábær frammistaða Thomas Hitzlsperger hafa nánast lokað á öll hugsanleg tækifæri hans með aðalliði West Ham á næstunni. Dyer mun því reyna að hjálpa til hjá sínu gamla félagi sem er eins og er í 16. sæti ensku b-deildarinnar. Paul Jewell hefur gert ágæta hluti á Portman Road síðan að hann tók við af Roy Keane í janúar. Dyer mun mæta aftur á Upton Park 9. apríl.
Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira