Fréttir vikunnar: Nokkur orð um Vítisengla og brotlendingu 6. mars 2011 21:00 Flugslysið í Grænlandi.
Vikan hófst á heldur ljótu máli þar sem í ljós kom að óprúttnir aðilar höfðu eyðilagt bíl einhverfrar stúlku. Bíllinn var ekki ökufær því einhverjir höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurrkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. Stúlkan var átján ára gömul en skemmdarverkin voru hluti af einelti sem stúlkan hefur þurft að þola. Sama dag misskildu forsvarsmenn erlendu ferðasíðunnar Gadling heldur betur nýtt myndband sem gert var fyrir árshátíð Icelandair og halda að þar sé um að ræða kynningu á nýjum búningum flugfélagsins. Yfirskrift umfjöllunarinnar á Gadling var „Iceland Air introduces new crew uniforms - in the weirdest airline video ever" sem á íslensku útleggst sem „Icelandair kynnir nýja einkennisbúninga í furðulegasta flugmyndbandi fyrr og síðar." „Getið þið ímyndað ykkur að United Airlines eða Delta gerði svona skemmtilegt myndband?" var spurt á Gadling. Þeim fannst myndbandið svo furðulegt að þeir gengu svo langt að líkja því við Twilight Zone-flugmyndbanda.Gunnar Rúnar Sigurþórsson var úrskurðaður ósakhæfur.Amor insanus og ósmekkleg ummæli Þriðjudaginn hófst á því að tveir rúmlega tvítugir menn voru í Héraðsdómi Reykjaness dæmdir til fangelsisvistar fyrir aðild sína að hrottalegri árás á 64 ára gamlan karlmann, eiginkonu hans og dóttur í Reykjanesbæ. Mennirnir sem um ræðir heita Axel Karl Gíslason, sem dæmdur var til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar, og Viktor Már Axelsson sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Axel og Viktor voru einnig dæmdir fyrir fjárkúgun eftir að þeir innheimtu skuld sem þeir töldu barnabarn mannsins í Reykjanesbæ skulda sér. Maðurinn var staddur fyrir utan hús sitt og var að setja kornabarn dóttur sinnar inn í bíl þegar piltarnir réðust að honum. Var honum hótað lífláti með hnífi auk þess sem hann var kýldur í andlit og ítrekað sparkað í líkama hans og höfuð. Svo kom var Gunnar Rúnar Sigurþórsson úrskurðaður ósakhæfur og dæmdur til vistar á viðeigandi öryggisstofnun fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst á síðasta ári. Dómurinn yfir Gunnar var hrollvekjandi. Þar kom meðal annars fram að hann væri haldinn „amor insanus" eða ástaræði. Kennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði var svo formlega áminntur af skólanum vegna skrifa sinna á bloggsíðu um níumenningamálið svokallaða. Þá var bréf sent til að allra foreldra barna við skólann þar sem ummæli kennarans voru fordæmd. Ummæli kennarans Baldurs Hermannssonar voru fjarlægð af bloggsíðu hans af vefstjóra. Í færslunni, sem fjallaði um níumenningamálið var meðal annars stungið upp á því að sakborningarnir yrðu settir í gapastokk eða búr. Orðrétt skrifaði kennarinn: „Og sýna kellingunum kynferðislega áreitni. Ekki má gleyma því."Thor Vilhjálmsson.Skemmdarvargar gefa sig fram og rithöfundur deyr "Þau voru miður sín og báðust afsökunar," sagði Ingunn Hrund Einarsdóttir móðir Sunnu, 18 ára, á miðvikudaginn um skemmdarvargana sem eyðilögðu og köstuðu eggjum í bílinn hennar Sunnu, Nissan Almera árgerð 2001, á mánudeginum, en þeir gáfu sig fram ásamt foreldrum sínum. Sunna og fjölskylda hennar ákváðu að gefa andvirði viðgerðar á bílnum, sem skemmdarvargarnir hafa samþykkt að greiða, óskert til samtaka Regnbogabarna sem hafa það að markmiði að gera börnum kleift að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis, af því að nokkur íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa tekið sig saman um að laga bílinn henni að kostnaðarlausu. Thor Vilhjálmsson rithöfundur er lést á miðvikudaginn, 85 ára að aldri. Thor Vilhjálmsson fæddist hinn 12. ágúst árið 1925 og hefði því orðið 86 ára í ágúst næstkomandi. Hann er í flokki bókmenntajöfra þjóðarinnar á 20. öldinni og eftir hann liggur fjölbreytt og mikið höfundarverk málað sterkum höfundareinkennum. Hann var einnig áberandi í íslenskri bókmennta og þjóðmálaumræðu.Einar Boom Marteinsson, forseti Vítisenglanna á Íslandi.Nokkur orð um Vítisengla og brotlendingu Þar var svo á fimmtudaginn sem innarnríkisráðherra og ríkislögreglustjóri tilkynntu að íslenski mótorhjólaklúbburinn, MC Iceland, myndi fá fulla aðild að samtökum Vítisengla, Hells Angels, í Osló um helgina. „Það þýðir breytingu á viðfangsefnum lögreglunnar þar sem við eigum við glæpahóp sem íslenskir aðilar eru fullgildir meðlimir í. Þeir munu þá njóta styrks, fjármagns og mannskaps alþjóðlegu glæpasamtakanna," sagði Haraldur á sameiginlegum fundi lögregluyfirvalda og ráðherrans. „Við verðum að rísa upp með fólki sem er kúgað. Við erum samstætt þjóðfélag, þjóðfélag sem getur staðið saman. Við ætlum öll að hjálpast að, þó það séu ekki til patentlausnir, þessi orð verða aldrei orðin tóm," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sem sagðist ætla að mæla fyrir forvirkum rannsóknarheimildum á þingi vegna þessa. Dash 8 flugvél Flugfélags Íslands brotlenti á flugvellinum í Nuuk á Grænlandi á fimmtudaginn. Vélin var að koma inn til lendingar þegar hún fékk vindhnút á sig og í lendingunni gaf hjólastellið hægra megin sig og brotnaði undan vélinni. Vélin rann út af flugbrautinni og út á öryggissvæði þar sem hún stöðvaðist. Allir farþegar voru heilir á húfi þótt þeim hafi, eðli málsins samkvæmt, brugðið við höggið. Þeir tóku síðan handfarangur sinn og gengu frá borði að sögn Árna Gunnarssonar framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands. 31 farþegi var um borð, þrír í áhöfn. Karlmaður fannst svo látinn í gufubaði World Class á miðvikudaginn en maðurinn lést skyndidauða samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar liggja fyrir en þær staðfesta að andlát mannsins hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Maðurinn var næturlangt í gufuklefanum en líkamsræktarstöðin lokar klukkan hálf tólf á kvöldin og opnar sex morguninn eftir. World Class sendi út tilkynningu í dag, sunnudag, þar sem fram kom að verklagsreglum hefði ekki verið fylgt hjá líkamsræktarstöðinni. Hörmuðu þau atvikið og vottuðu aðstandendum dýpstu samúð.
Mest lesið Svarar engu um afleiðingar þess að flugmaðurinn komi til skaða Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Erlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Innlent Fleiri fréttir Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent