Herforingjastjórnin sögð hafa brugðist byltingunni 24. nóvember 2011 03:00 Nokkrir mótmælendur skýla sér bak við skjöld á Tahrir-torgi í Kaíró, en lögreglan bíður átekta. Mótmælendur áttu von á gasi frá lögreglu og voru við öllu búnir.nordicphotos/AFP
Búnir til mótmæla Þessir tveir mótmælendur áttu von á gasi frá lögreglunni.nordicphotos/AFP Sameinuðu þjóðirnar krefjast óháðrar rannsóknar á atburðunum í Egyptalandi. Amnesty International sakar herforingjana um alvarleg mannréttindabrot. Tugir mótmælenda hafa látið lífið síðustu daga. Ekkert lát var á mótmælum og átökum í Egyptalandi í gær, fimmta daginn í röð, þrátt fyrir að herforingjastjórnin hefði lofað að hraða forsetakosningum svo stjórnarskipti gætu orðið fyrir mitt næsta ár. Vaxandi gagnrýni er á herforingjastjórnina á alþjóðavettvangi. Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, fordæmir stjórnina fyrir óhóflega valdbeitingu gegn mótmælendum. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja herforingjana ekki hafa efnt loforð um mannréttindaumbætur og bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum. Bandaríkin og framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hafa lýst miklum áhyggjum af þróun mála í Egyptalandi og þýsk stjórnvöld hvetja til þess að herforingjarnir láti völd sín sem fyrst af hendi til borgaralegrar stjórnar. „Sumar þeirra mynda, sem borist hafa frá Tahrir-torgi, þar á meðal af grimmilegum barsmíðum á mótmælendum sem þó var búið að yfirbuga, eru sérlega óhugnanlegar, og sama er að segja um frásagnir af því að óvopnaðir mótmælendur hafi verið skotnir í höfuðið," sagði Pillay í yfirlýsingu. Hún hvatti til þess að án tafar yrði gerð sjálfstæð rannsókn á atburðunum og þeir dregnir til ábyrgðar sem stóðu þannig að verki. Síðan herforingjastjórnin tók við völdum af Hosní Múbarak í febrúar á þessu ári hafa þúsundir manna verið handteknar. Á níunda hundrað manns hefur látið lífið og þúsundir manna hafa særst. „Vonir sem vöknuðu meðal íbúa Egyptalands eftir að Hosní Múbarak var komið frá völdum hafa verið kæfðar og ný stjórn kúgunar í raun tekið við," segir í tilkynningu frá Amnesty International, sem hefur birt nýja skýrslu um ástandið í Egyptalandi þar sem farið er yfir þau mannréttindabrot sem framin hafa verið á mótmælendum. Í skýrslunni kemur fram að herforingjarnir hafa ekki staðið við orð sín um úrbætur og ástand mannréttinda jafnvel versnað frekar en lagast. Um síðustu helgi sauð upp úr og mótmælin hófust að nýju. Síðan þá hafa hátt í fjörutíu manns látið lífið og að minnsta kosti tvö þúsund særst, flestir af völdum gúmmíkúlna sem her og lögregla hafa skotið á mótmælendur. Margir hafa einnig þurft aðhlynningu eftir að hafa andað að sér gasi. Bæði herinn og lögreglan neita að hafa notað venjulegar byssukúlur á mótmælendur, en mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa eftir starfsfólki í líkhúsum að 20 manns hið minnsta hafi látist af völdum skotsára. Pilay segir aðgerðir hers og lögreglu magna reiði almennings og hvetja fleiri til þátttöku í mótmælunum: „Því fleiri sem fólk sér flutt á brott í sjúkrabifreiðum, því ákveðnari og kraftmeiri verða mótmælendurnir," sagði hún. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira