Andri samdi til fjögurra ára við ÍBV: Vill ýta við öðrum lykilmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2011 09:30 Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV-liðsins.
Eyjafréttir hafa greint frá því að Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV-liðsins, sé búinn að gera nýjan fjögurra samning við félagið. Andri hefur spilað út um allan völl hjá ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar en að undanförnu hefur hann leyst stöðu miðvarðar. „Þar sem búið er að standa mjög vel að málum hjá okkur síðustu tvö ár þá líst mér bara vel á framhaldið og ákvað að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning," sagði Andri í myndbandsviðtali við Eyjafréttir eftir að hann skrifaði undir samninginn. „Ég er Eyjapeyi, fæddur og uppalinn hérna og maður verður hérna sennilega eins lengi og maður getur." Nokkrir leikmenn ÍBV-liðsins eru samningslausir eftir tímabilið en það eru Aaron Spear, Denis Sytnik, Ian Jeffs, Matt Garner, Rasmus Christiansen, Yngvi Magnús Borgþórsson. „Þetta er líka yfirlýsing til þess að reyna að fá fleiri lykilleimenn í liðinu til að lengja samninga sína þannig að þessi velgengni hjá okkur geti haldið áfram," sagði Andri í umræddu viðtali. „Núna eru erlendu leikmennirnir farnir að vera hjá okkur allt árið og það er mjög mikilvægt fyrir okkur að festa menn þannig að við séum ekki alltaf að skipta út mönnum," sagði Andri. „Við ætlum að reyna að vinna titilinn en þá þurfum við sennilega að vinna rest," sagði Andri brosandi að lokum aðspurður um toppbaráttuna við KR. Það má finna allt viðtalið með því að smella hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Fótbolti Fleiri fréttir Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Sjá meira