Stoltenberg aldrei verið vinsælli 1. ágúst 2011 15:00 Mynd/AFP
Forsætisráðherra Noregs hefur öðrum fremur verið í sviðsljósinu í kjölfar hryðjuverkanna. Hann hefur aldrei verið vinsælli og hefur hlotið mikið lof fyrir framgöngu sína. Viðbrögð hans allt frá byrjun hafa vakið athygli. Stoltenberg var fyrst kjörinn á norska stórþingið fyrir Verkamannaflokkinn árið 1993. Hann varð iðnaðarráðherra í ríkisstjórn Gro Harlem Brundtland 1993 til 1996. Þegar Brundtland sagði af sér árið 1996 og Thorbjörn Jagland tók við forystu Verkamannaflokksins og forsætisráðuneytinu varð Stoltenberg fjármálaráðherra. Ríkisstjórnin sagði af sér í október 1997 og Verkamannaflokkurinn var í stjórnarandstöðu þar til í mars árið 2000. Þá tók Stoltenberg í fyrsta sinn við embætti forsætisráðherra Noregs, þrátt fyrir að vera þá varaformaður flokks síns. Flokknum gekk illa í þingkosningum ári síðar og Stoltenberg fór í framhaldinu gegn Jagland í formannskjöri í Verkamannaflokknum. Jagland hætti við framboð áður en til atkvæðagreiðslu kom. Stoltenberg hefur verið leiðtogi flokksins frá árinu 2002, myndaði ríkisstjórn með Sósíalistaflokknum og Miðjuflokknum árið 2005 og hefur verið forsætisráðherra síðan.Heimsótt Útey árlega frá 1974 Um miðja síðustu viku gerði dagblaðið Verdens gang skoðanakönnun meðal Norðmanna sem leiddi í ljós að 94% aðspurðra sögðust ánægð með störf forsætisráðherrans. Hann segir það eðlilegt að hann hafi blandað saman hlutverki sínu sem forsætisráðherra og því að vera þátttakandi í sorginni, við að sýna að Norðmenn séu þjóð sem stendur saman. Hann þekkti marga sem létu lífið, enda hefur hann farið í Útey á hverju ári frá árinu 1974. „En þetta snýst ekki um mig, heldur um þá sem létu lífið í stjórnarhverfinu og í Útey, og um þá sem eru alvarlega særðir og á spítala. Þetta snýst um alla þá sem voru á staðnum og hafa upplifað nokkuð sem enginn á að þurfa að upplifa.“
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Sjá meira