Fórnarlamb sýruárásar féll frá kröfu um refsingu á síðustu stundu 31. júlí 2011 12:00 Ameneh Bahrami, írönsk kona, þurfti að þola sýruárás árið 2004 frá hendi manns sem hafði beðið um hönd hennar en hún hafnaði ráðahagnum. Hún er afmynduð í dag, en hér heldur hún á mynd af sér eins og hún leit út fyrir árásina. Mynd/AFP
Írönsk kona sem er fórnarlamb sýruárásar krafðist þess á síðustu stundu að árasarmaður sinn yrði náðaður en hann hafði á grundvelli umdeildra laga verið dæmdur til að verða blindaður á sjúkrahúsi að kröfu konunnar. Ameneh Bahrami, írönsk kona, þurfti að þola sýruárás árið 2004 frá hendi manns sem hafði beðið um hönd hennar en hún hafnaði ráðahagnum. Bahrami hafði krafist þess að qisas yrði beitt, en um er að ræða ákvæði í sharía löggjöf múslima sem er sjaldan beitt, ekki ósvipað Lex Talionis, lögum Hammúrabís, betur þekkt sem auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Íranskur dómstóll hafði árið 2008 fallist á kröfu konunnar um að árásarmaður hennar Majid Movahedi yrði að þola refsingu undir qisas sem fælist í því að hann yrði blindaður. Mannréttindasamtökin Amnesty International höfðu barist gegn því að refsingin yrði fullnustuð en þau hafa kallað beitingu ákvæðisins „grimma og ómennska refsingu sem jaðrar við pyntingu," að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Framkvæma átti aðgerðina á árasarmanninum Movahedi á sjúkrahúsi í Tehran í gær en Bahrami krafðist þess á síðustu stundu að refsingin yrði ekki fullnustuð og því hélt Movahedi sjóninni. Bahrami, sem var ung og í blóma lífsins er ráðist var á hana, er algjörlega afmynduð eftir sýruárásina og aðeins með eitt auga. Hún sagði í samtali við íranska ríkissjónvarpið að hún hefði í sjö ár barist fyrir því að árásarmanni sínum yrði refsað með qisas, hinu umdeilda lagaákvæði, en hún hafi ákveðið að náða hann því það hafi verið hennar réttur. Hún segist hafa gert þetta fyrir þjóð sína, þar sem aðrar þjóðir hafi fylgst náið með framvindu málsins. Hún segist ekki hafa viljað hefnd, aðeins réttlæti, en hún hafi ekki viljað að refsingin yrði fullnustuð þar sem hún hafi ekki viljað svipta manninn sjóninni. Bahrami segist engar skaðabætur hafa fengið frá fjölskyldu mannsins, en hún hefur aðeins krafist bóta fyrir greiðslu læknis- og umönnunarkostnaðar, um 150 þúsund evra, jafnvirði tæplega 25 milljóna króna.
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fá loksins að fagna aldarafmælinu Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira