Erlent

Þeldökkur kaupsýslumaður leiðir baráttuna

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Herman Cain varð efstur í skoðanakönnuninni í Iowa.
Herman Cain varð efstur í skoðanakönnuninni í Iowa. mynd/ afp.
Þeldökki kaupsýslumaðurinn Herman Cain er nú efstur þeirra sem sækjast eftir útnefningu Repúblikaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna í skoðanakönnunum í Iowa. Þrátt fyrir að íbúar ríkisins hafi tiltölulega lítil áhrif á útnefninguna, þá veita fjölmiðlar niðurstöðu forkosninga þar jafnan mikla athygli, þar sem kosningabaráttan hefst þar.

Cain er með 23 prósenta fylgi samkvæmt könnuninni sem framkvæmd var í Des Moines og hefur sótt mikið á, en Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, fylgir fast á hæla hans með 22 prósenta fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×