Enski boltinn

Milito farinn frá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Milito í leik með Barcelona á síðustu leiktíð.
Milito í leik með Barcelona á síðustu leiktíð. Nordic Photos / AFP
Gabriel Milito hefur fengið sig lausan undan samningi við spænska stórveldið Barcelona og er talið líklegt að hann sé á leið aftur til heimlandsins.

Milito hóf ferilinn með Independiente í Argentínu árið 1997 en hann hefur verið á Spáni undanfarin níu ár. Hann er yngri bróðir sóknarmannsins Diego Milito, leikmanni Inter á Ítalíu.

Hann gekk til liðs við Barcelona árið 2007 frá Real Zaragoza en kom aðeins við sögu í 75 leikjum með liðinu. Samningur hans átti að renna út í lok tímabilsins en honum hefur nú verið sagt upp.

Milito meiddist illa í hné vorið 2008 og var frá í átján mánuði eftir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×