Þúsundir íbúa Brisbane flýja flóð 11. janúar 2011 08:18 MYND/AP
Flóðin sem hrellt hafa íbúa Ástralíu síðustu daga virðast aðeins færast í aukana. Lögreglan í Brisbane í Queensland, þriðju stærstu borg Ástralíu, hvetur nú íbúa í úthverfum borgarinnar til þess að yfirgefa heimili sín þar sem flóðgarðar séu við það að rofna. Vatnsborðið hefur verið að hækka hratt í ám í borginni og einn eftirlitsmaður sagðist í gær hafa mælt hækkun á vatnsborði upp á einn og hálfan metar á aðeins einni klukkustund. Að minnsta kosti níu létust í flóðunum í gær í bænum Toowoombe í nágrenni Brisbane og er 70 manns saknað. Flóðið skall á eins og þruma úr heiðskýru lofti og var mun vatnsmeira en búist hafði verið við. Brisbane borg hefur hingað til sloppið að mestu við flóðin en nú er óttast að vatnselgurinn geti kaffært allt að 6500 byggingar í borginni í dag og á morgun. Ástandið er þegar farið að hafa mikil áhrif og eru matvörur að tæmast úr búðum borgarinnar. Yfirvöld dreifa sandpokum til íbúa sem eru hvattir til að gera sitt besta til að forða heimilum sínum frá eyðileggingunni. Flóðin eru þau mestu í Ástralíu í 50 ár og er flóðasvæðið stærra en Frakkland og Þýskaland samanlagt.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Sjá meira