United í undanúrslit eftir sigur á Arsenal Jón Júlíus Karlsson skrifar 12. mars 2011 19:05 Waney Rooney fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos/Getty Images
Manchester United er komið í undanúrslit í ensku bikarkeppninni eftir góðan sigur á Arsenal, 2-0, á Old Trafford. Þetta er í 27. skipti sem United kemst í undanúrslit í enska bikarnum og eiga því enn möguleika á að vinna tvöfalt í vor. Fabio Da Silva kom heimamönnum yfir á 28. mínútu. Waney Rooney átti frábæra sendingu á Javier Hernández sem skallaði að marki en Manuel Almunia varði vel. Fabio var hins vegar réttur maður á réttum stað og kom boltanum yfir línuna. Arsenal var meira með boltann í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa sér mörg hættuleg færi. Besta færi Arsenal í fyrri hálfleik átti Samir Nasri en hann átti gott skot undir lok fyrri hálfleiks sem Edwin van der Sar varði vel. Wayne Rooney tvöfaldaði forystuna fyrir heimamenn í upphafi síðari hálfleiks með hnitmiðuðum skalla. Rafael tók góðan sprett inn í teig Arsenal og átti sendingu fyrir markið sem varnarmenn Arsenal náðu ekki að hreinsa frá og Rooney skallaði boltann í netið. Arsenal reyndi hvað þeir gátu til að komast á blað en allar sóknarlotur þeirra strönduðu á van der Sar sem var sem klettur í marki heimamanna. Marouane Chamakh fékk líklega besta færi Arsenal en van der Sar varði skalla hans. Arsenal lék einum leikmanni færri síðustu mínúturnar eftir að svissneski varnarmaðurinn Johan Djourou varð að fara af velli vegna meiðsla en Arsene Wenger hafði þá nýtt allar þrjár skiptingarnar. Líklegt er að Djourou hafi farið úr axlalið og verður því frá keppni næstu vikurnar hið minnsta. Antonio Valencia snéri aftur í lið Man. United eftir nokkra mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann lék síðari hálfleikinn og styrkir lið United nokkuð á lokasprettinum á keppnistímabilinu.Man. United - Arsenal 2-0 1-0 Fabio (28.) 2-0 Wayne Rooney (49.)
Mest lesið „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Íslenski boltinn Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Handbolti UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Sport UFC-bardagakappi lést í svefni Sport Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Viktor Gísli framlengir við Barcelona Handbolti Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Sjá meira