Segja son Gaddafís hafa flúið úr varðhaldi 23. ágúst 2011 10:47 Vígreifur Seif al-Islam í hópi stuðningsmanna sinna í gær. Mynd/ap
Sonur Múammars Gaddafís Líbíuleiðtoga er ekki í haldi uppreisnarmanna eins og fullyrt var í gær. Harðir bardagar geisa nú við aðsetur Gaddafís í Trípólí. Í gær leit út fyrir að uppreisnarmenn væru við það að bera sigurorð af Gaddafí og binda þar með enda á rúmlega fjögurra áratuga einræðisstjórn hans. Staðan í dag er hinsvegar enn tvísýn og Seif Al-Islam sonur leiðtogans birtist öllum að óvörum í gærkvöldi og ávarpaði stuðningsmenn sína og erlenda blaðamenn við Rixos hótelið. Bráðabirgðastjórnin fullyrti í gær að Seif væri í varðhaldi og að sama væri að segja um tvo bræður hans. Þetta var síðan staðfest af saksóknara hjá alþjóðaglæpadómstólnum en dómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun á hendur Seif og föður hans. Málið er mjög óljóst en nú er haft eftir forsvarmanni bráðabirgðarstjórnar uppreisnarmanna að Seif hafi flúið úr varðhaldi. Seif, sem talinn var líklegur arftaki Gaddafís á valdastóli, segir að uppreisnarmenn hafi gengið í gildru með því að ráðast til atlögu í Trípólí og stjórnarherinn hafi nú brotið baráttuþrek þeirra á bak aftur. Í dag hafa þó borist fregnir af hörðum bardaga við höfuðstöðvar Gaddafís í borginni en ekkert er vitað um hvar Gaddafí sjálfur heldur sig. Að minnsta kosti tveir hafa látist í bardaganum í dag og hafa talsmenn Rauða krossins í borginni miklar áhyggjur af því að tala látinna og særða muni hækka þegar líður á daginn.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira