Átti Árni markið þrátt fyrir allt? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. ágúst 2011 14:40
Mikill ruglingur hefur verið um hver hafi skorað fyrra mark Breiðabliks í 2-1 sigri liðsins á Fylki í gær. Líklegast var það rétt sem kom fram í upphafi - að Árni Vilhjálmsson hafi skorað markið. Markið er þó skráð á Guðmund Kristjánsson sem átti vissulega skalla að marki eftir hornspyrnu frá hægri. Hins vegar þykir sýnt á sjónvarpsupptökum að boltinn hafi verið að stefna út af eftir skalla Guðmundar. Boltinn hafi svo breytt um stefnu á öðrum leikmanni og hafnað þar í markinu. Árni og félagi hans, Dylan Macallister, voru báðir í boltanum sem og Fylkismaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Sá fyrstnefndi segir í samtali við Vísi að hann hafi náð að snerta boltann með tánni. „Við ræddum þetta eftir leik í gær og við vorum sammála um það, ég og Dylan, að ég náði að pota tánni í boltann," sagði Árni við Vísi í dag. Ásgeir Örn Arnþórsson, varnarmaður Fylkis sem stóð við stöngina, fékk einnig boltann í sig á leið hans í markið. Þó er ekki um sjálfsmark að ræða þar sem að boltinn var hvort eð er á leið í markið. Dómari leiksins, Magnús Þórisson, segist líka hafa efast um að Guðmundur hafi skorað markið þegar hann sá atvikið í sjónvarpi í gær. „Mér sýndist hann hafa viðkomu í öðrum leikmanni og er sjálfsagt að endurskoða þetta," sagði hann við Vísi. Upptöku af markinu má sjá hér fyrir ofan og getur hver dæmt fyrir sig. En svo virðist sem að hinn sautján ára Árni Vilhjálmsson hafi skorað sitt fyrsta mark í efstu deild á Fylkisvellinum í gær.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Fleiri fréttir Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Sjá meira