Erlent

Mozilla og Microsoft í samstarf

Firefox er einn vinsælast vafri heims.
Firefox er einn vinsælast vafri heims.
Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla tilkynnti í dag um nýtt samstarf með Microsoft. Í tilkynningu á vefsíðu Mozilla kemur fram að sérstök útgáfa af vafra fyrirtækisins, Firefox, verði sérhönnuð fyrir leitarvél Microsoft, Bing.

Í þessari nýju útgáfu Firefox er Bing sjálfgefin leitarvél og heimasíða.

Forstjóri Microsoft, Steve Ballmer, kynnti Bing árið 2009 og síðan þá hefur leitarvélin gert lítið annað en að tapa peningum fyrir Microsoft. Þó svo að Bing sé sjálfgefin leitarvél í Internet Explorer, BlackBerry of Windows Phone þá hefur leitarvélin aðeins 4% markaðshlutdeild og þarf enn að berjast við Google, Yahoo og kínversku leitarvélina Baidu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×