Enski boltinn

Keane á leiðinni til West Ham

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Robbie Keane hefur samtals kostað 80 milljónir punda.
Robbie Keane hefur samtals kostað 80 milljónir punda. Getty Images

Írinn Robbie Keane er á leiðinni til West Ham samkvæmt heimildum Sky Sports. Hann undirgekkst lækknisskoðun í gær og mun fara til félagsins að láni út tímabilið.

Þessi þrítugi framherji hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Tottenham í vetur og hefur verið orðaður við mörg lið í janúarglugganum. West Ham virðist nú hafa náð að landa leikmanninum.

West Ham verður áttunda félagið sem Keane leikur með en hann hefur alls kostað 80 milljónir punda eftir að hafa verið hjá félögum líkt og Wolves, Coventry, Inter Milan, Leeds, Liverpool, Celtic og Tottenham.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×