Samþykkt að framkvæma óháða úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitunnar 31. mars 2011 20:45 Orkuveita Reykjavíkur.
Á borgarstjórnarfundi í kvöld var samþykkt, með öllum greiddum atkvæðum, tillaga um að fela borgarstjóra að láta fara fram óháða úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. Í bókun borgarstjórnar segir meðal annars: „Borgarstjóra er falið að láta fara fram óháða úttekt á stöðu og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur með það fyrir augum að draga fram með skýrum hætti orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu sem fyrirtækið hefur ratað í". Svo segir að úttektin skuli taka yfir tímabilið frá stofnun fyrirtækisins til dagsins í dag. Mikilvægt sé að úttekt þessi fari fram í samstarfi eigenda Orkuveitu Reykjavíkur. Þá kemur ennfremur fram að í bókuninni að borgarstjóri skuli leitast við að koma á slíku samstarfi. Þessi vinna á að hefjast tafarlaust samkvæmt tillögunni.
Tengdar fréttir Orkuveitan fær 11,3 milljarða frá borginni Reykjavíkurborg mun lána Orkuveitunni 11,3 milljarða króna til þess að rétta af fjárhag fyrirtækisins. Þetta var samþykkt á borgarráðsfundi í dag en borgarstjóri lagði tillöguna fram. Bróðurpartur lánsins verður greiddur út þann 1. apríl næstkomandi eða 7,4 milljarðar en eftirstöðvarnar á fyrri hluta árs 2013. 29. mars 2011 14:00 Ekki svaravert segir borgarstjóri „Við teljum þetta ekki svaravert,“ segir Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra, spurður um frétt Stöðvar 2 í gærkvöld um að ein ástæða þess að illa gangi með endurfjármögnun lána Orkuveitunnar sé Facebook-færsla Jóns um að fyrirtækið sé „á hausnum“. 28. mars 2011 06:00 Orkuveitan gat fengið milljarðalán hjá Landsbankanum Orkuveitan átti aðgang að átta milljarða lánalínu hjá Landsbanka Íslands á sama tíma og forstjóri fyrirtækisins sagði fyrirtækið gjaldþrota. Lán frá Landsbankanum hefði verið á verri kjörum en milljarðalán borgarinnar til fyrirtækisins, segir upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar. 31. mars 2011 12:01 Orkuveitan: Hefðu ekki getað borgað laun án björgunarpakkans Orkuveitan er gjaldþrota fyrirtæki að mati Bjarna Bjarnasonar forstjóra Orkuveitunnar og hefði ekki getað borgað starfsfólki laun án björgunarpakkans sem samþykktur var í dag. Stofnuð hefur verið sérstök rannsóknarnefnd sem fara mun yfir málefni Orkuveitunnar. 29. mars 2011 18:31 Áttuðu sig fyrst á grafalvarlegri stöðu Orkuveitunnar í lok janúar Það var ekki fyrr en 28. janúar sem stjórnendum Orkuveitunnar í Reykjavík varð ljóst að staða Orkuveitunnar væri grafalvarleg, og að fyrirtækið væri tæknilega gjaldþrota. 29. mars 2011 19:51 Alfreð Þorsteinsson: Þetta var leikrit Fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar til margra ára kallar aðgerðir meirihlutans í borginni vegna Orkuveitunnar leikrit. Hann hafi skilið við fyrirtækið í góðum rekstri. 30. mars 2011 19:15 Afborganir af lánum Orkuveitunnar á pari við Icesave Skammtímalán í erlendri mynt sem Orkuveitan tók á árunum 2006 til 2008 urðu fyrirtækinu að falli. Afborganir af lánum Orkuveitunnar verða af svipaðri stærðargráðu og bestu spár um kostnaðinn við Icesave gera ráð fyrir. 30. mars 2011 18:45 Forstjóri OR með 1,3 milljónir á mánuði Forstjóri Orkuveitunnar er með 1,3 milljónir á laun á mánuði. Hann boðar nýjan hugsunarhátt hjá fyrirtækinu og segir alla þurfa að herða sultarólina. Formaður borgarráðs segir samfélagið þurfa að sýna samstöðu með Orkuveitunni til að tryggja endurreisn fyrirtækisins. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, boðaði í gær nýja tíma og hugsun hjá fyrirtækinu en björgunarpakki borgarinnar felur í sér 12 milljarða króna víkjandi lán frá eigendum til Orkuveitunnar sem kemur á móti umfangsmiklum niðurskurðaraðgerðum hjá Orkuveitunni sjálfri. Bjarni Bjarnason sagði að nú þyrftu menn að herða sultarólina. "Það sem við erum að gerast snýst um lágmarksarðsemi. Greiðsluþol almennings er ekki mikið. Við vvildum sjá hærri arðsemi en við munum herða ólina allsstaðar og líka hjá okkur sjálfum,“ segir Bjarni. Meðal aðgerða Orkuveitunnar er fækkun starfsfólks og sala eigna. Spurður hvað hann væri sjálfur með í laun svaraði Bjarni: "Ég er með 1340 þúsund.“ Þegar fréttamaður spurði Bjarna hvort hann stefndi á að lækka laun sín, svaraði hann: "Þessi laun hafa lækkað um 40%, meiri launaskerðing en hjá flestum,“ segir hann. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði að stjórnin hefði ákveðið að laun forstjóra fylgdu kjararáðsúrskurði um sambærilegar stöður hjá sambærilegum fyrirtækjum. Dagur B. Eggertsson borgarfulltúi var þá spurður hvort hægt væri að bera Orkuveitu reykjavíkur við önnur orkufyrirtæki - fréttir dagsins væru jú þær að Orkuveitan væri tæknilega gjaldþrota. "Ég held við ættum frekar að miða laun Bjarna við lækninn sem kemur á slysstað en þann sem veldur slysinu,“ segir Dagur. 30. mars 2011 12:23 Ummæli talin skaða fjármögnun Orkuveitunnar Samningaumleitan Orkuveitunnar við hóp helstu lánveitenda sinna um endurfjármögnun milljarða lána ganga ekki sem skyldi. Talið er að ummæli borgarstjóra og helstu stjórnenda orkuveitunnar um bága fjárhagstöðu hennar í fjölmiðlum hafi þar áhrif. 27. mars 2011 18:36 Gjaldskrárhækkanir og fækkun starfsfólks til umræðu í Orkuveitunni Tugmilljarða björgunarpakki fyrir Orkuveitu Reykjavíkur er nú til umræðu hjá borginni. Umfangsmiklar gjaldskrárhækkanir, sala eigna, fækkun starfsfólks og frestun á fyrirhuguðum framkvæmdum eru á borðinu. 28. mars 2011 18:30 Orkuveitan fær ekki lán Erlend lánafyrirtæki hafa ekki viljað veita Orkuveitu Reykjavíkur lán og hefur norræni fjárfestingarbankinn sett fyrirtækið í frost. Þetta kemur fram í minnisblaði frá forstjóra Orkuveitunnar. 28. mars 2011 18:33 Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Fleiri fréttir Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Sjá meira
Orkuveitan fær 11,3 milljarða frá borginni Reykjavíkurborg mun lána Orkuveitunni 11,3 milljarða króna til þess að rétta af fjárhag fyrirtækisins. Þetta var samþykkt á borgarráðsfundi í dag en borgarstjóri lagði tillöguna fram. Bróðurpartur lánsins verður greiddur út þann 1. apríl næstkomandi eða 7,4 milljarðar en eftirstöðvarnar á fyrri hluta árs 2013. 29. mars 2011 14:00
Ekki svaravert segir borgarstjóri „Við teljum þetta ekki svaravert,“ segir Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra, spurður um frétt Stöðvar 2 í gærkvöld um að ein ástæða þess að illa gangi með endurfjármögnun lána Orkuveitunnar sé Facebook-færsla Jóns um að fyrirtækið sé „á hausnum“. 28. mars 2011 06:00
Orkuveitan gat fengið milljarðalán hjá Landsbankanum Orkuveitan átti aðgang að átta milljarða lánalínu hjá Landsbanka Íslands á sama tíma og forstjóri fyrirtækisins sagði fyrirtækið gjaldþrota. Lán frá Landsbankanum hefði verið á verri kjörum en milljarðalán borgarinnar til fyrirtækisins, segir upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar. 31. mars 2011 12:01
Orkuveitan: Hefðu ekki getað borgað laun án björgunarpakkans Orkuveitan er gjaldþrota fyrirtæki að mati Bjarna Bjarnasonar forstjóra Orkuveitunnar og hefði ekki getað borgað starfsfólki laun án björgunarpakkans sem samþykktur var í dag. Stofnuð hefur verið sérstök rannsóknarnefnd sem fara mun yfir málefni Orkuveitunnar. 29. mars 2011 18:31
Áttuðu sig fyrst á grafalvarlegri stöðu Orkuveitunnar í lok janúar Það var ekki fyrr en 28. janúar sem stjórnendum Orkuveitunnar í Reykjavík varð ljóst að staða Orkuveitunnar væri grafalvarleg, og að fyrirtækið væri tæknilega gjaldþrota. 29. mars 2011 19:51
Alfreð Þorsteinsson: Þetta var leikrit Fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar til margra ára kallar aðgerðir meirihlutans í borginni vegna Orkuveitunnar leikrit. Hann hafi skilið við fyrirtækið í góðum rekstri. 30. mars 2011 19:15
Afborganir af lánum Orkuveitunnar á pari við Icesave Skammtímalán í erlendri mynt sem Orkuveitan tók á árunum 2006 til 2008 urðu fyrirtækinu að falli. Afborganir af lánum Orkuveitunnar verða af svipaðri stærðargráðu og bestu spár um kostnaðinn við Icesave gera ráð fyrir. 30. mars 2011 18:45
Forstjóri OR með 1,3 milljónir á mánuði Forstjóri Orkuveitunnar er með 1,3 milljónir á laun á mánuði. Hann boðar nýjan hugsunarhátt hjá fyrirtækinu og segir alla þurfa að herða sultarólina. Formaður borgarráðs segir samfélagið þurfa að sýna samstöðu með Orkuveitunni til að tryggja endurreisn fyrirtækisins. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, boðaði í gær nýja tíma og hugsun hjá fyrirtækinu en björgunarpakki borgarinnar felur í sér 12 milljarða króna víkjandi lán frá eigendum til Orkuveitunnar sem kemur á móti umfangsmiklum niðurskurðaraðgerðum hjá Orkuveitunni sjálfri. Bjarni Bjarnason sagði að nú þyrftu menn að herða sultarólina. "Það sem við erum að gerast snýst um lágmarksarðsemi. Greiðsluþol almennings er ekki mikið. Við vvildum sjá hærri arðsemi en við munum herða ólina allsstaðar og líka hjá okkur sjálfum,“ segir Bjarni. Meðal aðgerða Orkuveitunnar er fækkun starfsfólks og sala eigna. Spurður hvað hann væri sjálfur með í laun svaraði Bjarni: "Ég er með 1340 þúsund.“ Þegar fréttamaður spurði Bjarna hvort hann stefndi á að lækka laun sín, svaraði hann: "Þessi laun hafa lækkað um 40%, meiri launaskerðing en hjá flestum,“ segir hann. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði að stjórnin hefði ákveðið að laun forstjóra fylgdu kjararáðsúrskurði um sambærilegar stöður hjá sambærilegum fyrirtækjum. Dagur B. Eggertsson borgarfulltúi var þá spurður hvort hægt væri að bera Orkuveitu reykjavíkur við önnur orkufyrirtæki - fréttir dagsins væru jú þær að Orkuveitan væri tæknilega gjaldþrota. "Ég held við ættum frekar að miða laun Bjarna við lækninn sem kemur á slysstað en þann sem veldur slysinu,“ segir Dagur. 30. mars 2011 12:23
Ummæli talin skaða fjármögnun Orkuveitunnar Samningaumleitan Orkuveitunnar við hóp helstu lánveitenda sinna um endurfjármögnun milljarða lána ganga ekki sem skyldi. Talið er að ummæli borgarstjóra og helstu stjórnenda orkuveitunnar um bága fjárhagstöðu hennar í fjölmiðlum hafi þar áhrif. 27. mars 2011 18:36
Gjaldskrárhækkanir og fækkun starfsfólks til umræðu í Orkuveitunni Tugmilljarða björgunarpakki fyrir Orkuveitu Reykjavíkur er nú til umræðu hjá borginni. Umfangsmiklar gjaldskrárhækkanir, sala eigna, fækkun starfsfólks og frestun á fyrirhuguðum framkvæmdum eru á borðinu. 28. mars 2011 18:30
Orkuveitan fær ekki lán Erlend lánafyrirtæki hafa ekki viljað veita Orkuveitu Reykjavíkur lán og hefur norræni fjárfestingarbankinn sett fyrirtækið í frost. Þetta kemur fram í minnisblaði frá forstjóra Orkuveitunnar. 28. mars 2011 18:33