Íslenski boltinn

Valur tekur á móti ÍBV í 16-liða úrslitum bikarsins

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Tryggvi Guðmundsson fékk rautt spjald síðast þegar ÍBV mætti Val á Vodafonevellinum.
Tryggvi Guðmundsson fékk rautt spjald síðast þegar ÍBV mætti Val á Vodafonevellinum. Mynd/Anton Brink
Þrír leikir fara fram í kvöld í 16-liða úrslitum Valitorbikarkeppni karla í fótbolta. Fyrsti leikur kvöldsins hefst kl. 18.00 á Vodafonevellinum á Hlíðarenda þar sem að Valur og ÍBV eigast við. Sá leikur verður í beinni netútvarpslýsingu á visir.is og að sjálfsögðu verður einnig boltavakt frá leiknum.

Í Grindavík eigast við heimamenn og HK. Grindavík er í Pepsideildinni en HK situr á botninum í 1. deild og verður þetta fyrsti leikur liðsins undir stjórn Ragnars Gíslasonar sem tók við liðinu í gær eftir að Tómasi Inga Tómassyni var sagt upp störfum. Leikurinn hefst kl. 19.15.

Á Valbjarnarvelli í Laugardal tekur 1. deildarlið Þróttar úr Reykjavík á móti Fram.   Leikurinn hefst kl. 19.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×