Sakar stjórnarþingmann um ósæmandi hagsmunagæslu Kristján Már Unnarsson skrifar 15. desember 2011 12:00 Ögmundur sagði Vestfirði langverst stadda. Þeir ættu að fá mest.
Ráðherra vegamála segir að ekki séu til fjármunir til að ráðast í jarðgöng á næstu árum og gagnrýnir þingmann Samfylkingarinnar fyrir ósæmandi hagsmunagæslu fyrir Norðfjarðargöng. Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi fyrir hádegi hversvegna Norðfjarðargöngum hefði verið frestað og hvaða jarðgöng hann teldi eðlilegast að farið yrði í næst. Ögmundur sagði forsendur síðustu samgönguáætlunar hafa brostið vegna bankahruns. Hann teldi Norðfjarðargöng brýn í efnahagslegu tilliti og til að bæta samgöngur á Austfjörðum. Hins vegar þyrfti að horfa til öryggis fólks og þar væri grundvallaratriðið að fólk yfirleitt kæmist á milli svæða. Þar væru Vestfirðir langverst staddir. Þessvegna væri samkvæmt samgönguáætlun gert ráð fyrir að verja hlutfallslega mestu fjármagni til Vestfjarða. Jónína Rós sagði að búið væri að lofa Norðfjarðargöngum í áratugi. „Fjórðungssjúkrahúsið okkar er handan við handónýt jarðgöng. Konur frá Seyðifirði, þær þurfa að fara yfir tvo hæstu fjallvegi landsins til þess að fjölga sér," sagði Jónína. Ögmundur sagði það engum góðum tilgangi þjóna að tala samgöngumannvirki niður með þessum hætti. Þeir þingmenn teldu sig þá vera að tala upp móralinn á þessum svæðum og þar með teldu þingmenn sig vera að standa sig afskaplega vel í hagsmunagæslu fyrir sína umbjóðendur. „Mér finnst þetta ekki rétt nálgun. Mér finnst hún í rauninni ekkert sæmandi. Við erum ekki með þessa fjármuni til ráðstöfunar," sagði Ögmundur og bætti við: „Sýnum fyrirhyggju og raunsæi og hættum að lofa upp í ermina á okkur."
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Sjá meira