Erlent

Svarti nashyrningurinn útdauður í Vestur-Afríku

Talið er að svarti nashyrningurinn í vesturhluta Afríku sé nú útdauður þar í landi. Nokkrir slíkir finnast þó enn í dýragörðum.

Það eru veiðiþjófar sem valdið hafa útdauða þessarar dýrategundar í sínum náttúrulegu heimkynnum.

Í frétt um málið á BBC segir að nú hafi tvær tegundir nashyrninga verið lýstar útdauðar með skömmu millibili. Fyrr í haust var greint frá því að Java nashyrningurinn í Asíu heyrði sögunni til.

Samkvæmt nýrri skýrslu frá alþjóðlegum náttúruverndarsamtökum er talið að um 25% af öllum villtum spendýrum jarðarinnar séu í útrýmingarhættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×