Erlent

Ekkert bólar á nýrri stjórn í Grikklandi

Enn bólar ekkert á nýrri þjóðstjórn í Grikklandi og raunar hefur einn af minni stjórnmálaflokkum landsins þegar gengið á dyr í samningaviðræðunum sem nú standa yfir.

Svo virðist sem deilur um hver eigi að verða forsætisráðherrann í hinni nýju stjórn valdi því að hún kemst ekki á koppinn. Í erlendum fjölmiðlum kemur fram að hættulegt valdatóm sé að myndast í Grikklandi sökum þess að ný stjórn hefur ekki verið mynduð.

George Papandreou fráfrandi forsætisráðherra hélt kveðjuávarp sitt í gærkvöldi og þar óskaði hann nýrri stjórn góðs gengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×