Réðust inn í sendiráð Sádí-Arabíu og Katars 13. nóvember 2011 12:11 Frá Sádí Arabíu
Æstur múgur réðst inn í sendiráð Sádí-Arabíu og Katar í Damaskus í gærkvöldi eftir að samtök Arabaríkja greiddu atkvæði um að vísa Sýrlandi úr samtökunum fyrir að ganga of hart fram gegn mótmælendum. Fjölmennur hópur stuðningsmanna Bashar al-Assad Sýrlandsforseta réðst inn í sendiráðin í Damaskus, höfuðborg landsins, í mótmælaskyni. Ákveðið hefur verið að vísa Sýrlandi úr samtökum Arabaríkja þann 16.nóvember ef þarlend stjórnvöld láta ekki af drápum á mótmælendum en talið er að yfir 3500 manns hafi fallið fyrir hendi þeirra frá því að mótmæli hófstu gegn ríkisstjórn landsins fyrir sjö mánuðum. Hundruð manna söfnuðust saman fyrir utan sendiráðin tvö að lokinni atkvæðagreiðslu, grýttu þau og létu vel heyra í sér með hrópum. Sendiráð Sádí-Arabíu var illa farið eftir þá sem fóru þar inn en gluggar voru brotnir og öllu snúið á hvolf. Þá vanvirtu sýrlensku mótmælendurnir fána Katar, en honum skiptu þeir út fyrir sinn eiginn. Vestrænar þjóðir sem og Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt blessuð sína yfir ákvörðun Arabaríkjanna. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur meðal annars lofað aðgerðirnar og Utanríkisráðherra Frakklands hvetur alþjóðasamfélagið til að grípa til frekari aðgerða.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira