Erlent

Huang Nubo klifið þrisvar á topp Everest

Huang Nubo.
Huang Nubo.
AP fréttastofan fjallar í dag um fyrirhugaðar fjárfestingar kínverska auðjöfursins Huang Nubo. Þar er segir að Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sé búinn að setja fyrirætlanir Nubo á ís og hann hafi sent honum fyrirspurn um af hverju hann vilji kaupa svona stórt landsvæði.

Fréttastofan fjallar ítarlega um kaup Nubo á Grímsstöðum á fjöllum og hefur eftir talsmanni hans hérlendis, Halldóri Jóhannssyni, að Nubo beri virðingu fyrir náttúrunni, hann hafi klifið mount Everest þrisvar og ferðast bæði til norður- og suðurpólsins.

Þá segir Sigurður Guðmundsson fulltrúi í bæjarstjórnar Akureyrar í samtali við AP að bærinn þurfi á fjárfestingunni að halda, hann efist samt um tímasetningu Nubos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×