Erlent

Hafa áhyggjur af miklu magni vopna í Líbíu

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir áhyggjum yfir því mikla magni vopna sem til er í Líbíu og hverning eigi að koma í veg fyrir ólöglega sölu á þessum vopnum. Sérstaklega í hendur meðlima samtaka á borð við al-kaída.

Í frétt um málið á BBC segir að þótt árásir NATO á hersveitir hliðhollar Muammar Gaddafi í uppreisninni sem nú er lokið hafi eyðilagt mikið magn af vopnum er ekki vitað með vissu hve mörg vopn eru enn í umferð.

Þá er talið að gífurlegt magn af flugskeytum sem Gaddafi safnaði að sér geti skapað hættu fyrir almennt áætlunarflug til og frá landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×