Erlent

Samsung hannar sveigjanlega snertiskjái

Fyrsti snjallsíminn með OLED snertiskjá er væntanlegur á næsta ári.
Fyrsti snjallsíminn með OLED snertiskjá er væntanlegur á næsta ári.
Samsung tilkynnti fyrir stuttu að næsta kynslóð snjallsíma muni hafa sveigjanlega snertiskjái. Robert Yi, talsmaður Samsung, sagði að fyrstu símarnir með slíkum skjá muni koma á markað á næsta ári.

Yi sagði að Samsung vilji halda áfram að þróa nýjar og spennandi vörur í takt við nýjasta snjallsíma fyrirtækisins, Samsung Galaxy S II, en hann hefur notið gríðarlegra vinsælda.

Samsung hefur verið leiðandi í þróun á svokallaðri OLED tækni en hún er talin vera hentugri til að framleiða sveigjanlega skjái en hefðbundin LCD tækni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×