Erlent

Brún augu verða að bláum

Brátt verður hægt að skipta um augnlit á svipstundu.
Brátt verður hægt að skipta um augnlit á svipstundu.
Læknir í Kalíforníu segist geta breytt augnliti með einfaldri aðgerð. Dr. Gregg Homer hefur þróað aðferðina í nær tíu ár en hann notar leysir til að eyða efsta lagi lithimnunnar.

Homer segir að í fyrstu verði einungis hægt að breyta brúnum augnlit í bláann en hann segir að grunnlitur lithimnu mannsins sé blár, liturinn sé einungis falinn undir þunnu lagi af litarefni sem auðveldlega megi fjarlægja.

Aðgerðin tekur um 20 sekúndur og mun líklega kosta 5000 dollara, eða tæpar 600.000 íslenskar krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×