Ill meðferð á íslenskum hestum vekur óhug í Svíþjóð 2. nóvember 2011 10:07 Eins og sjá má eru hrossin hræðilega illa haldin.
Ekki hafði verið mokað undan hestunum og því ráku þeir hausana upp undir loft hesthússins. Fréttir af skelfilegri meðferð á tuttugu íslenskum hestum hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð. Eigandi hestanna var þangað til í gær formaður hestafélagsins Gyda í Sandvik en það er hópur áhugamanna um íslenska hestinn. Heilbrigðisyfirvöld komust hinsvegar á snoðir um að maðurinn, Inge Johanson, færi vægast sagt illa með sín eigin hross. Myndir hafa nú verið birtar af dýrunum og eins og sjá má á þeim eru þau hrikalega illa haldin. Hófar þeirra eru úr sér vaxnir og líklegast hafa þeir ekki verið tálgaðir í heilt ár með tilheyrandi kvölum fyrir dýrin. Þá hefur ekki verið mokað undan hestunum í langan tíma og var svo komið að þeir þurftu að lúta höfði til þess að rekast upp undir loftið í hesthúsinu. Að auki hefur þeim ekki verið hleypt út í langan tíma. Johanson hafði ekki skráð hestana eins og lög gera ráð fyrir og því mun verða erfitt að koma þeim í verð eftir að þeim hefur verið komið til heilsu, takist það á annað borð.Hófarnir hafa ekki verið tálgaðir í hátt í ár en því fylgja gríðarlegar kvalir fyrir hestana.Í sænska dagblaðinu Arbetarbladet segir að dýralæknirinn sem hafi komið að hesthúsinu hafi ekki séð jafn slæma meðferð á dýrum á þeim 25 árum sem hann hefur unnið við dýralækningar. Johanson var í miklum metum á meðal hestamanna á svæðinu og því hafa fréttirnar af slæmri umhirðu komið öllum í opna skjöldu. Hann hafði unnið hörðum höndum að því að skipuleggja stóra hestasýningu á næsta ári þar sem keppa átti í ístölti í fyrsta sinn í Svíþjóð.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Fleiri fréttir Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Sjá meira