Erlent

Hælisleitendur á leið til Ástralíu drukkna

Talið er að sjö hælisleitendur hafi drukknað.
Talið er að sjö hælisleitendur hafi drukknað. mynd/AFP
Að minnsta kosti sjö hælisleitendur létust þegar bátur þeirra sökk á leið frá Indónesíu. Talið er að báturinn hafi verið á leið til Ástralíu.

57 manns var bjargað úr skipsflakinu. Talið er að hælisleitendurnir séu frá Íran og Afganistan.

Chris Bowen, flóttamannaráðherra Ástralíu, sagði litlar líkur vera á að fleiri finnist á lífi.

Þúsundir hælisleitenda reyna að komast til Ástralíu á hverju ári. Margir greiða indónesískum smyglurum fyrir að ferja sig til landsins.

Talið er að fleiri hafi látið lífið en báturinn var yfirfullur af fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×