Erlent

G-20 fundurinn hefst í dag í skugga Grikklands

Fundur leiðtoga G-20 ríkjanna hefst í Cannes í Frakklandi í dag. Eins og á neyðarfundi leiðtoga Evrópusambandsins í sömu borg í gærdag verður Grikkland í brennidepli á G-20 fundinum.

George Papandreou forsætisráðherra Grikklands sagði í gærkvöldi að hann væri bjartsýnn á að Grikkir myndu samþykkja samkomulagið sem gert var um skuldavanda landsins í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú liggur fyrir að atkvæðagreiðslan fer fram í byrjun næsta mánaðar.

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir að ef samkomulagið verði fellt í atkvæðagreiðslunni verði Grikklandi sparkað út úr evrusamstarfinu í kjölfarið.

Þá mun næsta greiðsla frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til Grikklands, 8 milljarðar evra, ekki verða afgreidd fyrr en eftir atkvæðagreiðsluna sem og næsta greiðsla af neyðaraðstoð ESB til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×