Erlent

Nær 15% Bandaríkjamanna þurfa á matarmiðum að halda

Nær 15% Bandaríkjamanna reiða sig nú á matarmiða frá hinum opinbera til að eiga til hnífs og skeiðar.

Fjöldi þeirra sem þiggur matarmiða í Bandaríkjunum er kominn í tæplega 46 milljón manns og hefur fjöldinn aukist um 8% frá því í fyrra.

Í frétt um málið í blaðinu Wall Street Journal segir að líkur séu á að áfram fjölgi í þessum hópi Bandaríkjamanna á næstu mánuðum vegna hins erfiða efnahagsástands í landinu.

Mest er neyðin í Mississippi þar sem 21% af íbúum ríkisins fá matarmiða. Í ríkjunum New Mexíkó, Tennessee, Oregon og Lousiana eru einnig um fimmtungur íbúanna á matarmiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×