Erlent

Papandreou að segja af sér?

Mikil pressa hefur verið á Papandreou undanfarið vegna skuldavanda Grikklands.
Mikil pressa hefur verið á Papandreou undanfarið vegna skuldavanda Grikklands. Mnd/AFP
Búist er við því að forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, segi af sér á næsta hálftímanum samkvæmt upplýsingum fréttamiðilsins BBC.

Papandreou mun hitta gríska forsetann í dag strax eftir að neyðarfundi í ríkisstjórninni sem hann situr þessa stundina lýkur. Gera menn ráð fyrir því að þar muni hann bjóðast til að láta af völdum og leggja til að mynduð verði samsteypustjórn með Lucas Papademos, fyrrverandi varaforseta seðlabanka Evrópu, í forsvari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×