Erlent

Telur aðild Palestínu að UNESCO ekki til góðs

Mynd/AFP
„Aðild Palestínu að stofnunum Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) er engum til góðs," sagði Ban Ki-moon, aðalritari SÞ, í viðtali í gær.

Hann benti á að afleiðingar þess að fjármagn stofnananna minnki í kjölfar umsókna Palestínu muni bitna á milljónum manna.

Sem kunnugt er fékk Palestína inngöngu í UNESCO fyrr í vikunni. Í kjölfarið hættu Bandaríkin og Kanada að styðja stofnunina. Þar með missti stofnunin um einn fjórða hluta fjármagns síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×