Erlent

Styttist í dómsuppkvaðningu í máli Murrays

Málið hefur staðið í um sex vikur.
Málið hefur staðið í um sex vikur. mynd/AFP
Nú styttist í að réttarhöldunum yfir Conrad Murray ljúki. Murray var læknir poppstjörnunnar Michael Jackson og var viðstaddur þegar hann lést.

Murray er sakaður um að hafa átt aðild að dauða Jackson með því að gefa honum of stóran skammt af svefnlyfinu propofol.

Í lokaávarpi sínu sagði saksóknari að meðhöndlun Murrays hefði verið fáránleg og að það væri honum að kenna að börn Jacksons væru nú föðurlaus.

Verjandi Murray sagði hins vegar að Jacksons hafi sjálfur stjórnað lyfjagjöfinni.

Verði Murray fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi.

Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir í málinu en umhugsunarfrestur kviðdómenda hefst á föstudaginn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×