Erlent

Sex falla í skyndiflóðum

Frá Genoa á Ítalíu.
Frá Genoa á Ítalíu. mynd/AFP
Að minnsta kosti sex hafa látist í skyndiflóðum í hafnarborginni Genoa á Ítalíu í dag. Mikil rigning hefur verið á svæðinu síðustu daga og er henni kennt um flóðin.

Yfirvöld í Genoa sögðu íbúum borgarinnar að halda sig innandyra og ráðlögðu þeim reyna að komast á efri hæðir bygginga.

Fimm létust þegar flæddi inn í andyrri íbúðarblokkar, þar á meðal tvö börn. Kona lést þegar hún varð fyrir bifreið sem flóðið hafði sópað með sér.

Marta Vicenzi, borgarstjóri Genoa, sagði að flóðin væru ófyrirséður harmleikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×