Erlent

Aðgerðarsinnar teknir höndum við Gasaströndina

27 aðgerðarsinnar voru teknir höndum við Gasaströndina.
27 aðgerðarsinnar voru teknir höndum við Gasaströndina. mynd/AFP
Sjóher Ísraels stöðvaði tvö skip sem reyndu brjótast í gegnum herkvína við Gasaströndinni í dag. Sjóliðar gengu um borð í skipin sem voru á leið frá Tyrklandi. 27 aðgerðarsinnar voru um borð í bátunum en þeir voru að ferja vistir til Gasa-svæðisins.

Bátarnir voru frá Kanada og Írlandi.

Í yfirlýsingu frá sjóhernum kemur fram að engan hafi sakað í aðgerðinni og að bátarnir verði dregnir í togi til hafnarborgarinnar Ashdod í Ísrael.

Aðgerðarsinnarnir verða yfirheyrðir og svo fluttir til heimalanda sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×