Vinnur að myndun þjóðstjórnar 5. nóvember 2011 15:29
Gríska þingið lýsti yfir trausti á ríkisstjórn George Papandreou með naumum meirihluta í gærkvöldi. Papandreou vinnur nú að myndun þjóðstjórnar og hefur fallið frá tillögu um að björgunarpakki til handa Grikkjum fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórn Papandreous fékk stuðning þingsins með 153 atkvæðum af 300 á gríska þinginu. Papandreou fundaði með Karolos Papoulias, forseta Grikklands, klukkan tíu að íslenskum tíma til að greina honum frá áformum um myndun þjóðstjórnar. Forsvarsmenn helsta stjórnarandstöðuflokksins, Nýs lýðræðis, hafa þó lýst því yfir að þeir muni ekki taka þátt í myndun slíkrar stjórnar með Papandreou, en hann hefur lýst því yfir að hann muni sjálfur biðjast lausnar við myndun nýrrar samsteypustjórnar. Í ræðu fyrir gríska þinginu seint í gærkvöldi sagði Papandreou, sem hefur fallið frá tillögu sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunarpakka eftir mikinn utanaðkomandi þrýsting, að það yrði í höndum nýrrar ríkisstjórnar að tryggja björgunarpakkann, sem samþykktur var í Brussel hinn 26. október síðastliðinn, en stórir gjalddagar eru á lánum gríska ríkisins í desember og því allt útlit fyrir að landið fari í greiðsluþrot fáist ekki fjárhagsaðstoð. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu Papandreou fyrr í vikunni Grikkland fengi ekki frekara fjármagn frá Evrópusambandinu ef björgunarpakkinn yrði ekki samþykktur. Auk þessara yfirlýsinga og mikils utanaðkomandi þrýstings heima fyrir ákvað Papandreou að falla frá tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Skoðanakannanir bentu til þess að björgunarpakkinn yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu, en það hefði mögulega þýtt endalok evrusamstarfsins fyrir Grikki. Fréttaveitan Reuters greinir frá því að Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra Grikkja, hafi tryggt stuðning minni flokka á gríska þinginu við samsteypustjórn sem hann komi til með að leiða. Ný ríkisstjórn muni síðan boða til kosninga innan fárra mánaða eftir að fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu er í höfn en samkvæmt Reuters er rætt um að þingkosningar verði í febrúar á næsta ári.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira