Erlent

Yfir þrjár milljónir fyrir tönn úr Lennon

John Lennon
John Lennon
Kanadískur tannlæknir keypti tönn úr John Lennon heitnum fyrir 19,500 pund, jafnvirði þriggja og hálfri milljón króna, á uppboði í Stockport í Bretlandi.

Michael Zuk, frá Alberta, tók þátt í uppboðinu símleiðis til að tryggja tönnina sem Lennon gaf húshjálp sinni, Dot Jarlett, á sjöunda áratug síðustu aldar.

Tönnin var hluti af safni minjagripa tengdum rokkheiminum sem var í eigu Alan McGee, fyrrverandi umboðsmanns bresku hljómsveitarinnar Oasis. Aðrir gripir sem boðnir voru upp voru olíumálverk eftir John Squire úr Stone Roses og gjafir frá stjórnmálamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×