Erlent

Aurskriður valda manntjóni í Kólombíu

Að minnsta kosti 24 hafa farist og tuga er saknað eftir miklar aurskriður í vesturhluta Kólombíu.

Verst er ástandið í borginni Manizales þar sem fjöldi húsa grófst undir aurnum. Í frétt BBC um málið segir að áframhaldandi mikið úrhelli tefji fyrir björgunarmönnum sem leita að fólki í leðjunni.

Kólombíumenn glíma nú við einhverja mestu úrkomu í manna minnum í landinu og hafa um 250.000 manns neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×