Erlent

Hvíta húsið kannast ekkert við geimverur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stjórnvöld í Bandaríkjunum kannast ekki við að hafa upplýsingar um geimverur eða fljúgandi furðuhluti.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum kannast ekki við að hafa upplýsingar um geimverur eða fljúgandi furðuhluti.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er formlega neitað að þau hafi einhverja þekkingu á yfirskilvitlegum atburðum.

Tilkynningin er svar vegna undirskriftasöfnunar We The People vefsíðunnar, en stjórnvöld hafa heitið því að bregðast við öllum undirskriftasöfnunum þar sem meira en 5000 undirskriftum er safnað.

Í tveimur undirskriftasöfnunum á vefsíðunni var kallað eftir því að allar upplýsingar sem stjórnvöld kynnu að hafa um geimverur af einhverju tagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×