Erlent

Segir ekki koma til greina að hætta við kjarnorkuáætlunina

Mahmoud Ahmadinejad er vígreifur að vanda.
Mahmoud Ahmadinejad er vígreifur að vanda.
Forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad segir að ekki komi til greina að hnika um millimeter frá kjarnorkuáætlun landsins en Kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna fullyrðir í nýrri skýrslu að íranar hafi framkvæmt leynilegar kjarnorkutilraunir.

Óttast er að Íranar séu að koma sér upp kjarnavopnum þrátt fyrir að hafa ítrekað fullyrt að kjarnorkuáætlunin miði aðeins að því að framleiða orku.

Rússar hafa gefið það út að ekki komi til greina að styðja við frekari viðskiptaþvinganir gegn Íran. Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa, Gennady Gatilov, segir í samtali við fréttastofuna Interfax að frekari þvinganir megi túlka sem svo að önnur ríki væru að reyna að steypa stjórnvöldum af stóli.

Frakkar og Bandaríkjamenn hafa hinsvegar báðir hvatt til frekari viðskiptaþvingana í ljósi hinna nýju upplýsinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×