Erlent

Sjaldan meiri andstaða gegn ESB-aðild í Noregi

Andstaða Norðmanna við inngöngu í Evrópusambandið hefur aldrei verið meiri á síðari tímum.

Í umfangsmikilli skoðanakönnun sem birt er í Dagbladet kemur fram að 72% Norðmanna myndu hafna aðild að Evrópusambandinu ef kosið yrði í dag og aðeins 12% eru hlynnt aðildinni. Fara þar áratugi aftur í tímann til að sjá sambærilegar tölur.

Fram kemur í umfjöllun um skoðanakönnunina að ástæða fyrir þessri miklu andstöðu meðal Norðmanna er einkum skuldakreppan sem ríkir innan Evrópusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×