Erlent

Miklar hörmungar yfirvofandi í Taílandi

Miklar hörmungar eru yfirvofandi í Taílandi vegna flóðanna þar í landi undanfarnar vikur. Nú óttast sérfræðingar að farsóttir á borð við malaríu muni breiðast út meðal íbúa landsins.

Þar að auki er hungursneyð í uppsiglingu þar sem flóðin hafa eyðilagt hrísgrjónauppskeru landsins.

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum eru yfir 100.000 manns nú á vergangi í höfuðborginni Bangkok og nær 400 manns hafa farist í flóðunum.

Hjálparstofnanir á borð við Rauða krossin og UNICEF reyna hvað þær geta til að koma í veg fyrir farsóttir. Hafa þær dreift tugum þúsunda af mýflugnanetum meðal íbúa Tailands sem og miklu magni af flöskuvatni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×