Erlent

Snjókoma og blindbylur veldur mannsköðum í Bandaríkjunum

Að minnsta kosti níu manns hafa farist í mikilli snjókomu og blindbyljum við austurströnd Bandaríkjanna um helgina. Yfir þrjár milljónir manna eru án rafmagns og hita og þarf stór hluti þessa fólks að búa við það ástand næstu daga.

Í frétt um málið á BBC segir að snjókoman sé óvenju snemma á ferðinni þennan vetur og hafi það komið fólki í opna skjöldu. Sjókoman hefur verið allt upp í 68 sentimetra af jafnföllum snjó í sumum héruðum Massachusetts og vindhraðinn hefur náð 111 kílómetrum á klukkustund í verstu byljunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×