Erlent

Sjálfsmorðsárás við Flóttamannastofnun

Frá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna, UNHCR, í Kandahar.
Frá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna, UNHCR, í Kandahar. mynd/AFP
Að minnsta kosti fimm manns létu lífið í sjálfsmorðsárás í Kandahar í Afganistan í dag. Yfirvöld segja að bíl hafi verið ekið að eftirlitsstöð hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna og hún sprengd.

Talsmenn segja að þrír starfsmenn stofnunarinnar hafi látist í árásinni. Að auki lét afganskur lögreglumaður lífið og fimm aðrir særðust.

Samkvæmt yfirlýsingu frá Talibönum kemur fram að árásin hafi beinst að Flóttamannastofnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×