Erlent

Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða börnin sín

Jóno Hákon Halldórsson skrifar
Danskir lögreglumenn við störf.
Danskir lögreglumenn við störf. mynd/ afp.
Danskur karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir að myrða þrjú börn sín þann 9. febrúar síðastliðinn. Jette Christiansen, dómsformaður sagði við uppkvaðningu dómsins að fjölskipaður dómur hefði verið einhuga í ákvörðun sinni.

„Við höfum metið persónuleikann og grófleikann og aðferðina við þessi morð. Við höfum tekið tillit til þess að morðin voru skipulögð, meðal annars með notkun svefnlyfs og að morðin voru framin á þremur stöðum á heimilinu,“ sagði dómsformaðurinn.

Eftir að maðurinn hafði byrlað börnum sínum svefnlyfi gekk hann herbergi úr herbergi og skaut þau í höfuðið. Hann skaut átta skotum í allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×