Erlent

Siri skilur ekki Skota

Siri er byltingarkennt skipulagsforrit sem Skotar geta ekki notað.
Siri er byltingarkennt skipulagsforrit sem Skotar geta ekki notað. mynd/AFP
Skoskir iPhone notendur eru allt annað en ánægðir með Siri, nýjasta skipulagsforrit Apple. Forritið byggist á raddgreiningu og gerir notendum kleift að tala við símann. Vandamálið er að Siri skilur ekki skoskan hreim.

Með Siri er hægt að senda skilaboð, tölvupóst, biðja um leiðbeiningar og uppfæra dagatalið - allt saman gert án handa.

Á vefsíðu Apple kemur fram að Siri skilji breskan, bandarískan og ástralskan hreim.

Margir Skotar hafa lýst yfir vonbrigðum sínum og krefja Apple um svör. Ekkert hefur bólað á viðbrögðum frá tölvurisanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×