Erlent

Fundu efnavopn í Líbíu

Vopnageymslur eins og þessi hafa fundist víðsvegar í Líbíu.
Vopnageymslur eins og þessi hafa fundist víðsvegar í Líbíu. mynd/AFP
Talsmaður Þjóðarráðsins í Líbíu greindi frá því í dag að efnavopn frá valdatíð Gaddafi hafi fundist í landinu.

Þjóðarráðið hefur nú umsjón með vopnunum en beðið er eftir að sérfræðingar geti skoðað vopnin og fargað þeim.

Margir óttuðust að vígamenn Gaddafis myndu nota efnavopn í baráttu sinni við byltingarhermenn.

Ian Martin, verkefnisstjóri Sameinuðu Þjóðanna í Líbíu, sagðist hafa miklar áhyggjur af óskráðum vopnum sem finna má víðsvegar í landinu. Hann sagði að söfnun þessara vopna sé forgangsverkefni nú þegar borgarastyrjöldinni sé lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×