Erlent

Sprengja fannst í Halle

Talið er að sprengjan sé um hálft tonn að þyngd.
Talið er að sprengjan sé um hálft tonn að þyngd. mynd/HALLEFORUM.DE
Sprengja fannst við vegaframkvæmdir í Halle í Þýskalandi fyrr í dag. Yfirvöld í bænum hafa rýmt nærliggjandi hús, þar á meðal spítala bæjarins. Einnig hefur miðbær Halle verið rýmdur og öllum búðum lokað.

Ásgeir Páll Ágústsson, sem býr í Halle, segir að mikil ringulreið hafi skapast þegar sprengjan fannst í morgun.

Talið er að sprengjan sé hálft tonn að þyngd. Sprengjusérfræðingar munu reyna að aftengja sprengjuna. Gangi það ekki verður hún flutt frá byggð og að öllum líkindum sprengd.

Ásgeir sagði að íbúar Halle væru órólegir og að það væri hreint ekki þægilegt að vita af sprengju svo nálægt bænum.

Rætt verður við Ásgeir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Áhugasamir geta stillt á Bylgjuna klukkan 16:45  og heyrt frásögn Ásgeirs af sprengjufundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×