Erlent

Flóð í Bangkok

Alls hafa 373 látist i flóðunum í Tælandi.
Alls hafa 373 látist i flóðunum í Tælandi. mynd/AFP
Íbúar Bangkok búa sig undir hið versta þegar hvert hverfi borgarinnar á fætur öðru fyllist af vatni.

Yfirvöld í Bangkok hafa lýst yfir fimm daga fríi svo að borgarbúar geti undirbúið sig fyrir flóðin. Brottflutningar hafa þegar hafist í nokkrum hvefum borgarinnar.

Tæplega tíu milljón manns búa í Bangkok.

Nú þegar hafa 373 látist í flóðunum og hafa 9.5 milljónir Tælendinga fundið fyrir áhrifum þeirra. Yfirvöld í Tælandi segja flóðin vera þau verstu í hálfa öld.

Ástæðuna fyrir flóðunum má rekja til mikilla rigninga á monsúntímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×