Erlent

Búist við fárviðri í Bandaríkjunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Búist er við afar vondu veðri á austurströnd Bandaríkjanna.
Búist er við afar vondu veðri á austurströnd Bandaríkjanna. mynd/ afp.
Svo virðist sem það ætli að gera aftakaveður á austurströnd Bandaríkjanna nú um helgina. Bandaríska veðurstofan hefur í það minnsta gefið út aðvörun þar sem gert er ráð fyrir vindstyrk allt upp undir 72 km/klst, eftir því sem BBC greinir frá. Búist er við mikilli snjókomu með storminum. Óveðrið er þegar byrjað í Pennsylvaníu, Maryland og Vestur-Virginíu. Þar eru um 10 þúsund manns án rafmagns vegna óveðursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×